

Miðlar ehf.
​útgáfa og markaðsráðgjöf
Miðlar ehf. er fyrirtæki sem sérhæfir sig í útgáfu á blöðum og kynningarefni fyrir fyrirtæki og félagasamtök. Miðlar ehf. býður einnig alhliða þjónustu í markaðsmálum fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
Okkar þjónusta
Við höfum áratugareynslu og fjölþætta þekkingu á útgáfu- og auglýsingamálum og getum aðstoðað fyrirtæki og félagasamtök við að ná til markhópa sinna með skilvirkum og skemmtilegum hætti.
Markaðsráðgjöf og miðlun
Við getum séð um markaðsherferðina þína. Við getum afmarkað markhóp, sett upp birtingaáætlun, hannað auglýsingar og birt þær, þar sem hentar þinni vöru, hvort sem er á samfélagsmiðlum, í fjölmiðlum eða öðrum stafrænum miðlum - svo sem helstu leitarvélum. Við sjáum til þess að þú sjáist þar sem markhóp þinn er að finna.
Útgáfa og textagerð
Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af samfélagsmiðlunum - við getum séð um ljósmyndun og textagerð og tryggjum að fyrirtæki þitt sé lifandi á samfélagsmiðlum. Við sjáum einnig um útgáfu á hvers kyns blöðum og kynningarefni frá a til ö. Við getum haft umsjón með ritstjórn og efnisöflun, ljósmyndun, hönnun, umbroti og samskiptum við prentsmiðju og dreifingu.
Grafísk hönnun
Við bjóðum upp á hvers kyns grafíska hönnun, svo sem auglýsingagerð, hönnun vefsíðna, fyrirtækjamerkja, bréfsefna, og hvers kyns kynningarefnis og markpósta. Við hönnum samræmt útlit fyrirtækis þíns á samfélagsmiðlum og veitum ráðgjöf um ímynd fyrirtækisins.